Færslur: 2011 September

25.09.2011 15:51

Samuel Torres á A-trane í Berlín

Fór á tónleika með slagverksleikranum Samuel Torres á jazzklúbbnum A-Trane þann 2. sept. s.l.





Með Samuel Torres komu fram á þessum tónleikum
 
Niko Meinhold á píanó
Checho Gomes á bassa
Marshall Gilkes á trombone
og Lara Bello sem söng nokkur lög  larabello.com


15.09.2011 21:45

Tenórarnir tveir á Rósenberg

Tenórarnir tveir þeir Ólafur Jónsson og Stefán S. Stefánsson voru með tónleika á Café Rósenberg sunnudagskvöldið 18. sept. s.l.

Þar endurtóku þeir tónleika sem þeir voru með í Norræna húsinu á Jazzhátíð Reykavíkur.

Fróðir menn um jazzmúsíkk sögðu mér að þeir tónleikar hefðu verið með þeim bestu á hátíðinni.

Með þeim léku Þorgrímur Jónsson á bassa, Einar Valur Scheving á trommur og Agnar Már Magnússon á píanó
En hér eru tvö tóndæmi frá því á sunnudag.





14.09.2011 22:36

Berlín 2011 - Fo[u]r Alto -

Mánudaginn 22. ágúst var auglýsing í Berlínsku dagblaði um tónleika þá um kvöldið.
Í auglýsingunni stóð að þetta væri Fo[u]r Alto - Mikrotonale Musik für vier Altsaxophone.
Nógu forvitnilegt til að láta slag standa og mæta á svæðið.


Inngangurinn að Artitu.de listasmiðjunni.    Frank Gratkowski

Þetta var athyglisverð kennslustund í hvaða hljóðum er hægt að ná úr saxinum og teknar sírenuæfingar og fleira.
Ég er svona meira fyrir rythmann og ljóðlínurnar.
Myndasyrpa er hér
og svo tóndæmi hér  á Youtube.com

Heimasíða fjórmenninganna er svo hér

Fo[u]r Alto - Mikrotonale Musik für vier Altsaxophone.



12.09.2011 21:38

Berlín í ágúst 2011


Falk Breitkreuz blæs í saxófóninn í B-flat klúbbnum

Eyddi sumarleyfinu mínu í Berlín þessa jazzhátíð Reykjavíkur og því engar myndir af henni í ár.

A-train og B-flat eru helstu jazzsklúbbarnir sem túristabæklingar mæla með og því var kúrsinn settur þangað.

Bob Rutman hafði ég aldrei heyrt nefndan fyrr en ég las dagskrárbækling frá b-flat klúbbnum í Rosenthalerstrasse.  Ekki var þröng á þingi er þangað kom og auðvelt fá sæti á góðum stað. 

Bob þessi ér áttræður fjöllistamaður og í tónlistinni er það helst stálselló sem hann spilar á. 

Smellið á myndina til að fá tóndæmi. - (Nokia C5)
Ekki meira um það.

Nokkrum dögum síðar var farið aftur á b-flat klúbbinn til að hlusta á söngkonu að nafni Pascal von Wroblewsky sem ætlaði að fara í "sevanties songbook summer special"
Með henni lék píanóleikarinn Julia Hülsmann, saxafónleikarinn Falk Breitkreuz og gítarleikarinn Jürgen Heckel. Þetta var hinn ágætasti konsert. Spilamennska af bestu sort og söngurinn hreint frábær.
Enn og aftur var ég bara með símann til að taka myndir á og gæðin heldur í lakari kantinum eins og sjá má.

Leyfi mér að vísa í myndasyrpu hér   (Nokia C5)

Hér er upptaka frá b-flat -
Símamyndirnar mínar eru hér.

Hlustið á þetta  It don't mean að thing. by Duke Ellington. Sunged by Pascal von Wroblewsky


  • 1

Tenglar

Flettingar í dag: 34
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 303898
Samtals gestir: 65060
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 12:26:34

Ábyrgðarmaður síðunnar

Nafn:

Guðmundur Albertsson

Farsími:

6605141

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

5515186
eXTReMe Tracker