14.05.2008 19:25

Long John i Købmagergade- In memoriam


Svona var umhorfs þegar ég ætlaði á dögunum að gæða mér á síld með lifandi músík.
Kránni "Long John" við Købmagergade númer 48, rúmlega armslengd frá Sívala turni, hafði verið lokað vegna ágreinings við húseigendur. 
Það er eftirsjá í svona stað.  Þarna var hægt að ganga að lifandi tónlist nánast hvern dag ársins og á jazzhátíðinni í Köben voru þarna ekki færri en þrennir tónleikar á dag.
Þarna mætti danskurinn og  einstaka túristar til að fá sér margrómaða síldarrétti hússins og fleira gott og svo eitthvað til að skola því niður með. 
Swingið var allsráðandi og þó það flokkist nú ekki undir merkilega tónlist af einstaka forfrömuðum jazzmanninum þá var þetta engu að síður stór partur af jazzinum og ómissandi að mér finnst á hverri jazzhátíð..
Þarna hafa leikið fyrir gesti t.d. Bapa Bues viking jazz band, Richardo's jazzmen,
Jesper Thilo og tónarnir í klarinettunni hjá Jörgen Svare voru síður en svo máltíðarspillir.
Þetta er eins og þeir hafi lokað Hvids vinstue og Spinderokken.
Nú hefst leitin að svipuðum stað til að geta gengið að síld með swingi.
Kannski Drop Inn í Kompagnistræde. 34 fylli skarðið. Þar er aðsetur Long John jazzklub sem er félagsskapur
áhugamanna um traditional jazz



 

Christine Stephan

Christine Stephan

Tenglar

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 85
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 293187
Samtals gestir: 62800
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 03:20:37

Ábyrgðarmaður síðunnar

Nafn:

Guðmundur Albertsson

Farsími:

6605141

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

5515186
eXTReMe Tracker