Flokkur: Jazz undir Fjöllum

14.07.2011 20:00

Jazzhátíð að Skógum 2011

Jazzhátið var á Skógum undir Eyjafjöllum laugardaginn 9. júlí s.l.

Jón Rafnsson                                    Ólafur Stolzenwald
Í Skógakaffi voru kontrabassaleikararnir Ólafur Stozenwald frá Hellu og Jón Rafnsson frá Krikjubæjarklaustri, trompetleikarinn Birkir Freyr Matthíasson frá Vestmannaeyjum og píanóleikarinn Vignir Þór Stefánsson frá Selfossi. Auk þeirra komu fram trommuleikararnir Einar Valur Svheving og Erik Quik, gírarleikarinn Áseir Ásgeirsson og svo á lúðrana þeir Sigurður Flosasn og Birkir Freyr Matthíasson

Myndasyrpuna frá Skógakaffi er hér eða með því að setja eitt klikk á bassaleikarana.


Í félagsheimilinu Fossbúð um kvöldið lék Stórsveit Suðurlands undir stjórn Selfyssingsins Vignis Þórs Stefánssonar. Þrír sunnlenskir söngvarar komu fram með sveitinn þau Kristjana Stefánsdóttir,  Gísli Stefánsson og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir.
Allir 17 meðlimir hljómsveitarinnar eru ýmist frá Suðurlandi eða búsettir þar.

Myndir hér  eða með því að smella á myndina af blásurunm hér að ofan



Stórsveitin lék og söng  When the saints go marching in
Gísli Stefánsson og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir sungu einnig með sveitinni
Kristjana og Guðlaug sungu saman eitt lag
og svo komu allir söngvararnir saman  með hljómsveitinn.


Og hér er tengill á Nocturne eftir Evert Taube





It had to be you - Kvintett Ólafs Stlozenwald




18.07.2009 10:54

Skógar 2009 - Jazzhátíð

Tónleikar í Fossbúð - Ragnar Bjarnason


Laugardagskvöldið 11. júlí kom Ragnar Bjarnason fram á tónleikum í félagsheimilinu Fossbúð á Skógum. Rífandi stemming var í nær fullu húsi.
Hljómsveit kvöldsins var þannig skipuð: Eyþór Gunnarsson: píanó, Sigurður Flosason: saxófónn, Þorgrímur Jónsson: kontrabassi,  Þorvaldur Þór Þorvaldsson: trommur.

Myndasyrpa hér.

Skógahátíð 2009 lauk svo með tónleikum Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunnarssonar í Skógakirkju á sunnudeginum




16.07.2009 19:49

Skógar 2009 - Jazzhátíð

Skógar 2009 - Jazzhátíð dagana 10.-12. júlí


Ómar Guðjónsson, Jóel Pálsson og Þorgrímur Jónsson á Skógum 2009

Tónlistarhátiðin Jazz undir Fjöllum var haldin 10.-12. júlí

Hér eru myndir af fyrstu tónleikunum en á þeim kom fram tríó Ómars Guðjónssonar
Með Ómari léku Þorvaldur Þór Þorvaldsson á trommur og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Sérstakur gestur Ómars var svo Jóel Pálsson


Á laugardaginn 11. júlí var spilað á Skógakaffi. Sigurður Flosason og Jóel Pálsson með sín tríó, Eyþór Gunnarsson og Jóel Pálsson með dúó og að lokum kvartett Sigurðar Flosasonar en hann skipuðu auk Sigurðar þeir Ómar Guðjónsson, Þorvaldur Þór Þorvaldsson og Þorgrímur Jónsson
Myndir hér.

Myndir frá tónlekum með Ragnari Bjarnasyni koma svo von bráðar.

12.07.2008 14:45

Jazz undir Fjöllum 2008

Jazzhátíð að Skógum undir Eyjafjöllum 2008 var haldin dagana 11.og 12. júlí s.l.

Laugardagur 12. júlí
Byggðasafnið í Skógum - Samgöngusafn / Skógakaffi - Myndir frá tónleikunum eru hér
Tríó Sigurðar Flosasonar hóf tónleikana en með honum léku þeir Jón Páll Bjarnason á gítar og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa.
Á eftir tríói Sigurðar komu tríó Ara Braga Kárasonar og tríó Birkis Freys Matthíassonar en í tríóum þeirra beggja léku Þórir Baldursson á Hammond orgel og Pétur Östlund á trommur.
Botninn í tónleikana sló svo kvartett Hauks Gröndal  og með honum voru þeir Ásgeir J. Ásgeirsson á  gítar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Erik Qvick: trommur.

Í félagsheimilinu Fossbúð léku svo Bláir skuggar um kvöldið:  Sigurður Flosason: saxófónn, Þórir Baldursson: Hammond orgel, Jón Páll Bjarnason: gítar, Pétur Östlund:
trommur.

Myndir frá hátíðinn 2005 eru hér

28.08.2005 00:00

Jazz undir Fjöllum 2005

Nýjar myndir fár Jazzhátíð að Skógum 26.-28. ágúst 2005


Havanaband Tómasar R. Einarssonar föstudagskvöldi 26. ágúst í Fossbúð

Tómas R. Einarsson á bassa, Óskar Guðjónsson á sax, Matthías Hemstock og Pétur Grétarsson á slagverk og Ómar Guðjónsson á  gítar.


Tríó Björns Thor í Skógakaffi laugardaginn 27. ágúst 2005
Tómas R. Einarsson á bassa, Pétur Grétarsson á trommur og Björn Thoroddsen með gítarinn
Myndir hér:



Sunnudagur 28. ágúst.
Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson léku í Skógakirkju
Myndir hér:
  • 1

Tenglar

Flettingar í dag: 21
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 303885
Samtals gestir: 65055
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:43:01

Ábyrgðarmaður síðunnar

Nafn:

Guðmundur Albertsson

Farsími:

6605141

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

5515186
eXTReMe Tracker