Flokkur: Reykjavík jazz festival 2008
18.01.2009 21:10
Sigurður Flosason á jazzhátíð 2008

Jón Páll Bjarnason, Sigurður Flosason og Lennart Ginman.
Síðbúnar myndir frá tónleikum tríós Sigurðar Flosasonar á tónleikum í Iðnó miðvikudaginn 27. ágúst á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008.
Tríóið skipa þeir Jón Páll Bjarnason á gítar, Sigurður Flosason á saxófón og Lennart Ginman á bassa.
Þetta voru upptökutónleikar sem fram fóru í efri salnum í Iðnó
Myndir má sjá hér:
Skrifað af GJA
20.10.2008 20:30
Better days blues

Frá eftirminnilegum útgáfutónleikum á NASA á Jazzhátíð Reykjavíkur 30. ágúst 2008
Kristjana Stefáns - söngur, Agnar Már Magnússon - hammondorgel/píanó, Ómar Guðjónsson - gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson - kontrabassi, Scott McLemore - trommur
Myndir hér
Skrifað af GJA
23.09.2008 00:43
Trúnó. Ragnheiður Gröndal og Tómas R.

Trúnó. Tómas R Einarsson og Ragnheiður Gröndal -
Tónleikar í Fríkirkjunni á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008.
Með þeim léku Davíð Þór Jónsson, Ómar Guðjónsson og Matthías Hemstock.
Hér eru nokkar myndir frá undirbúningi tónleikanna.
22.09.2008 23:49
Olivier Manoury á NASA

Olivier Manoury og hljómsveit voru á NASA laugardaginn 26. ágúst á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Með Olivier voru Rubens Santana á rafbassa, Leonardo Montana á píanó og Lukmil Perez Herrera frá Kúbu á trommur
Myndir frá tónleikunum eru hér og einnig nokkrar myndir frá hádegisjazzi í Ingólfsnausti
Skrifað af GJA
20.09.2008 23:23
Björkestra - Stórsveit Reykjavíkur

Stórsveit Reykjavíkur - Bjorkestra
Travis Sullivan stjórnaði stórsveit Reykjavíkur í Háskólabíói laugadaginn 30. ágúst á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008. Sveitin flutti útsetningar Sullivans á tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur. María Magnúsdóttir, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson sungu texta Bjarkar með sveitinni.
Myndir frá tónleikunum eru hér.
Skrifað af GJA
11.09.2008 00:39
Gítarveisla Björns Thor í Háskólabíói

Björn Thoroddsen bauð í gítarveislu í Háskólabíói á Jazzhátíð Reykjavíkur fimmtudaginn 28. ágúst. Björn bauð með sér Kazumi Watanabe frá Japan og Philip Catherine frá Belgíu og einnig mættu Magnús Eiríksson og Þórður Árnason með sína gítara, Jón Rafnsson með bassann og Jóhann Hjörleifsson með trommur.
Myndasería úr Háskólabíói er hér
Christoph Giese
10.09.2008 22:59
Ed Thigpen og Scantet í Háskólabíói

Trommuleikarinn Ed Thigpen og Scantet komu fram á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008
Í Scantet Ed Thigpen eru auk hans Tomas Franck á saxófón, Anders Bercrantz á trompet, Olivier Antunes á píanó og Jesper Bodilsen á bassa.
Myndasería frá þessum tónleikum er hér
Skrifað af GJA
09.09.2008 22:18
Ómar Guðjónsson á Organ 29. ágúst 2008

Ómar Guðjónsson var á Organ föstudagskvöldið 29. ágúst á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Með Ómari voru þeir Þorgrímur Jónsson á bassa og Matthías Hemstock á trommur.
Lék hljómsveitin lög af nýútkominni plötu Ómars, "Fram af".
Sjá myndirnar hér.
Skrifað af GJA
07.09.2008 20:14
Theo Bleckmann solo í Fríkirkjunni

Þýski söngvarinn og lagahöfundurinn Theo Bleckmann kom fram í Fríkirkjunni á Jazzhátíð Reykjavíkur föstudaginn 29. ágúst s.l.
Sviðsmynd Theos er frekar óvenjuleg. Stór kertastjaki í bakgrunni þar sem sprittkertum hafði verið raðað á og svo var sviðslýsingin enni gamall glæruvarpi.
Myndir úr Fríkirkjunni eru hér.
04.09.2008 20:21
Organ: M blues Project og Skver 27. ágúst

Tepokinn, M blues Project og Skver léku á Organ á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Hér eru myndir af M blues Project og Skver
01.09.2008 22:30
BMX tríó og Hilmar Jensson í Iðnó

BMX tríó frá Noregi er skipað Njål Ölnes á saxófón, Thomas T. Dahl á gítar og Öyvind Skarbo á trommur. Með þeim spilaði Hilmar Jensson miðvikudaginn 27. ágúst á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008
Myndir af þeim eru hér
01.09.2008 22:25
Steintryggur í Iðnó 27. ágúst 2008

Steintyggur í Iðnó á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008
Steingrímur Guðmundsson og Sigtryggur Baldursson
Fleiri myndir af Steintryggi eru hér
01.09.2008 20:42
Haukur Gröndal og hljómsveit í Iðnó

Svingtónleikarestrasjón í Iðnó: - Haukur Gröndal og hljómsveit á Jazzhátíð Reykjavíkur 2008
Með Hauki vor þeir Þorgrímur Jónsson á bassa, Erik Quik á trommur, Ásgeir J. Ásgeirsson á gítar, Agnar Már Magnússon á píanó og sem gestir komu Reynir Sigðursson á víbrafón og Ragnar Bjarnason sem söng nokkur gömul lög
Myndir hér
01.09.2008 17:31
Tónleikar í Iðnó og Glaumbar 26. ágúst
31.08.2008 22:33
Setning Jazzhátíðar Reykjavíkur 2008
Jazzhátíð Reykjavíkur 2008 var sett í Iðnó þriðjudaginn 26. ágúst

Kristján Marteinsson, Reynir Sigurðsson og Magnús Trygvason Elíasson
Fleiri myndir hér.

Kristján Marteinsson, Reynir Sigurðsson og Magnús Trygvason Elíasson
Fleiri myndir hér.
- 1
- 2

