Flokkur: Copenhagen jazz festival
14.05.2008 19:25
Long John i Købmagergade- In memoriam
Svona var umhorfs þegar ég ætlaði á dögunum að gæða mér á síld með lifandi músík.
Kránni "Long John" við Købmagergade númer 48, rúmlega armslengd frá Sívala turni, hafði verið lokað vegna ágreinings við húseigendur.
Það er eftirsjá í svona stað. Þarna var hægt að ganga að lifandi tónlist nánast hvern dag ársins og á jazzhátíðinni í Köben voru þarna ekki færri en þrennir tónleikar á dag.
Þarna mætti danskurinn og einstaka túristar til að fá sér margrómaða síldarrétti hússins og fleira gott og svo eitthvað til að skola því niður með.
Swingið var allsráðandi og þó það flokkist nú ekki undir merkilega tónlist af einstaka forfrömuðum jazzmanninum þá var þetta engu að síður stór partur af jazzinum og ómissandi að mér finnst á hverri jazzhátíð..
Þarna hafa leikið fyrir gesti t.d. Bapa Bues viking jazz band, Richardo's jazzmen, Jesper Thilo og tónarnir í klarinettunni hjá Jörgen Svare voru síður en svo máltíðarspillir.
Þetta er eins og þeir hafi lokað Hvids vinstue og Spinderokken.
Nú hefst leitin að svipuðum stað til að geta gengið að síld með swingi.
Kannski Drop Inn í Kompagnistræde. 34 fylli skarðið. Þar er aðsetur Long John jazzklub sem er félagsskapur áhugamanna um traditional jazz
Christine Stephan
Christine Stephan
04.05.2008 00:00
Copenhagen jazz festival 2006

Fred Frith rífur í gítarinn um borð í MS Stubnitz
"I will be back" sagði þessi níræði fiðluleikari eftir tveggja tíma tónleika í Glassalen í Tívolí.
Nokkrar myndir frá Copenhagen jazzfestival 2006
Meðal þeirra sem komu fram á CJF 2006 voru:
Fred Frith, Kenny Baron, Benjamin Koppel, Sigurður Flosason, Palle Mikkelborg, Alex Riel, Ibrahim electric, Airto Mreira, Jesper Thilo , Anderskov Accident , Bo Stief, Jakob Høgsbro Ensemble og margir fleiri.
Jazzthetik Christine Stepahn
13.04.2008 21:41
Copenhagen jazz festival 2006

Richard Bona í Copenhagen jazz house12. júlí 2006
Fleiri myndir hér
Bona á Youtube.
Heimasíða http://www.bonatology.com/
14.06.2005 22:07
Copenhagen jazzfestival 2005
Hér eru komnar myndir frá Copenhagen jazzfestival 2005

I Kongens have. - Helen Davies og Palle Mikkelborg léku á
minningartónleikum um Nils Henning Örsted Pedersen.
Á hátíðinni komu fram meðal annarra Richard Galliano, Christina von Bulow, Jesper Lundgaard, Finn Ziegler, Jacob Fischer, Jens Skou Olsen, Benita Haastrup. Kaspar Tranberg, Roy Hayens, Ben Besaiakow, Hugo Rasumssen,

I Kongens have. - Helen Davies og Palle Mikkelborg léku á
minningartónleikum um Nils Henning Örsted Pedersen.
Á hátíðinni komu fram meðal annarra Richard Galliano, Christina von Bulow, Jesper Lundgaard, Finn Ziegler, Jacob Fischer, Jens Skou Olsen, Benita Haastrup. Kaspar Tranberg, Roy Hayens, Ben Besaiakow, Hugo Rasumssen,
- 1
