Flokkur: Ýmsir tónleikar
15.05.2012 20:31
Jazzhátíð Garðabæjar 2012
Jazzhátíð Garðabæjar 2012 byrjar með trukki á fimmtudagskvöldið

Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar leikur í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ, klukkan 20:30 fimmtudagskvöldið 17. maí
Sjáið dagskrána hér
Ókeypis aðgangur er að öllum tónleikunum

Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar leikur í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ, klukkan 20:30 fimmtudagskvöldið 17. maí
Sjáið dagskrána hér
Ókeypis aðgangur er að öllum tónleikunum
Skrifað af GJA
13.02.2012 22:45
Ásgrímur Angantýsson og hljómsveit á Café Haiti

Meðal atriða á Vetrarhátíð í Reykjavík dagana 9.-12. febrúar voru tónleikar hljómsveitar Ásgríms Angantýssonar á Café Haiti í gömlu verbúðunum við Geirsgötu.
Söngvari með hljómsveitinni var Jón Svavar Jósefsson. Aðrir meðliðmir voru:
Ásgrímur Angantýssoná píanó
Ársæll Másson á gítar
Eyjólfur Þorleifsson á sax
og Þórður Högnason á bassa
Myndir frá tónleikunum eru hér.
Skrifað af GJA
25.09.2011 15:51
Samuel Torres á A-trane í Berlín
Fór á tónleika með slagverksleikranum Samuel Torres á jazzklúbbnum A-Trane þann 2. sept. s.l.
Með Samuel Torres komu fram á þessum tónleikum
Niko Meinhold á píanó
Checho Gomes á bassa
Marshall Gilkes á trombone
og Lara Bello sem söng nokkur lög larabello.com
Með Samuel Torres komu fram á þessum tónleikum
Niko Meinhold á píanó
Checho Gomes á bassa
Marshall Gilkes á trombone
og Lara Bello sem söng nokkur lög larabello.com
Skrifað af GJA
15.09.2011 21:45
Tenórarnir tveir á Rósenberg
Tenórarnir tveir þeir Ólafur Jónsson og Stefán S. Stefánsson voru með tónleika á Café Rósenberg sunnudagskvöldið 18. sept. s.l.
Þar endurtóku þeir tónleika sem þeir voru með í Norræna húsinu á Jazzhátíð Reykavíkur.
Fróðir menn um jazzmúsíkk sögðu mér að þeir tónleikar hefðu verið með þeim bestu á hátíðinni.
Með þeim léku Þorgrímur Jónsson á bassa, Einar Valur Scheving á trommur og Agnar Már Magnússon á píanó
En hér eru tvö tóndæmi frá því á sunnudag.
Þar endurtóku þeir tónleika sem þeir voru með í Norræna húsinu á Jazzhátíð Reykavíkur.
Fróðir menn um jazzmúsíkk sögðu mér að þeir tónleikar hefðu verið með þeim bestu á hátíðinni.
Með þeim léku Þorgrímur Jónsson á bassa, Einar Valur Scheving á trommur og Agnar Már Magnússon á píanó
En hér eru tvö tóndæmi frá því á sunnudag.
Skrifað af GJA
14.09.2011 22:36
Berlín 2011 - Fo[u]r Alto -
Mánudaginn 22. ágúst var auglýsing í Berlínsku dagblaði um tónleika þá um kvöldið.
Í auglýsingunni stóð að þetta væri Fo[u]r Alto - Mikrotonale Musik für vier Altsaxophone.
Nógu forvitnilegt til að láta slag standa og mæta á svæðið.


Inngangurinn að Artitu.de listasmiðjunni. Frank Gratkowski
Þetta var athyglisverð kennslustund í hvaða hljóðum er hægt að ná úr saxinum og teknar sírenuæfingar og fleira.
Ég er svona meira fyrir rythmann og ljóðlínurnar.
Myndasyrpa er hér
og svo tóndæmi hér á Youtube.com
Heimasíða fjórmenninganna er svo hér
Fo[u]r Alto - Mikrotonale Musik für vier Altsaxophone.
Í auglýsingunni stóð að þetta væri Fo[u]r Alto - Mikrotonale Musik für vier Altsaxophone.
Nógu forvitnilegt til að láta slag standa og mæta á svæðið.


Inngangurinn að Artitu.de listasmiðjunni. Frank Gratkowski
Þetta var athyglisverð kennslustund í hvaða hljóðum er hægt að ná úr saxinum og teknar sírenuæfingar og fleira.
Ég er svona meira fyrir rythmann og ljóðlínurnar.
Myndasyrpa er hér
og svo tóndæmi hér á Youtube.com
Heimasíða fjórmenninganna er svo hér
Fo[u]r Alto - Mikrotonale Musik für vier Altsaxophone.
Skrifað af GJA
12.09.2011 21:38
Berlín í ágúst 2011

Falk Breitkreuz blæs í saxófóninn í B-flat klúbbnum
Eyddi sumarleyfinu mínu í Berlín þessa jazzhátíð Reykjavíkur og því engar myndir af henni í ár.
A-train og B-flat eru helstu jazzsklúbbarnir sem túristabæklingar mæla með og því var kúrsinn settur þangað.
Bob Rutman hafði ég aldrei heyrt nefndan fyrr en ég las dagskrárbækling frá b-flat klúbbnum í Rosenthalerstrasse. Ekki var þröng á þingi er þangað kom og auðvelt fá sæti á góðum stað.
Bob þessi ér áttræður fjöllistamaður og í tónlistinni er það helst stálselló sem hann spilar á.

Smellið á myndina til að fá tóndæmi. - (Nokia C5)
Ekki meira um það.
Nokkrum dögum síðar var farið aftur á b-flat klúbbinn til að hlusta á söngkonu að nafni Pascal von Wroblewsky sem ætlaði að fara í "sevanties songbook summer special"
Með henni lék píanóleikarinn Julia Hülsmann, saxafónleikarinn Falk Breitkreuz og gítarleikarinn Jürgen Heckel. Þetta var hinn ágætasti konsert. Spilamennska af bestu sort og söngurinn hreint frábær.
Enn og aftur var ég bara með símann til að taka myndir á og gæðin heldur í lakari kantinum eins og sjá má.

Leyfi mér að vísa í myndasyrpu hér (Nokia C5)
Hér er upptaka frá b-flat -
Símamyndirnar mínar eru hér.
Hlustið á þetta It don't mean að thing. by Duke Ellington. Sunged by Pascal von Wroblewsky
Skrifað af GJA
07.08.2011 13:31
Kristjana Stefáns með tónleika í Munnhörpunni

Kristjana Stefáns og hljómsveit í Munnhörpunni
Fullt var út úr dyrum á fyrstu sumarjazztónleikum Munnhörpunnar
en þeir vor haldnir laugadaginn 6. ágúst .Fleiri myndir hér.
Skrifað af GJA
17.10.2010 19:00
KK tríó á Rósenberg

KK - tríóið var á Cafe Rósenberg 8. október s.l.
Kristján, Þorleifur og Kormákur skemmtu gestum á Rósenbert 8. og 9. október.
Myndir hér.
Skrifað af GJA
18.02.2010 23:14
Lúðrasveit verkalýðsins 50 ára

Lúðrasveit verkalýðsins hélt upp á 50 ára afmæli sitt með tónleikum í Langholtskirkju þann 8. mars 2003 að viðstöddum fjölda gesta bæði tignum og svo okkur hinum.
Þessar myndir fann ég þegar ég var að taka til á harða diskinum og rétt náði að bjarga þeim áður en þær fóru í gleymskufælinn. Myndirnar eru teknar á filmuvél og skannaðar.
Hægt er að skrifa athugasemdir og ef einhver hefur nennu til væri fínt að fá nöfn á myndirnar
Smellið á myndirnar til að skoða albúmin.

Eftri tónleikana var boðið í kaffi og með því. Þar voru stjórnendur sveitarinnar heiðraðir og Torfi Karl Antonsson gerður að heiðursfélaga sveitarinnar.

Skrifað af GJA
20.10.2009 17:49
Guðmundur Steingrímsson áttræður

Guðmundur Steingrímsson - Papa Jazz við settið í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Tónleikar til heiðurs Guðmundi Steingrímssyni áttræðum voru haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur sunnudaginn 18. október 2009.
Fjöldi hljóðfæraleikara og söngvara heiðraði Guðmund á tónleikunum svo og þéttfullur salur ánægðra áheyrenda.
Skoðið myndir hér:
Skrifað af GJA
13.09.2009 18:10
Young nordic jazz comets 2009
Íslendingar sigra á Young nordic jazz comets annað árið í röð.

Reginfirra: Ingimar Andersen og Kristján Martinsson á Rósenbreg á RJF 2009
Reginfirra, kvartett Ingimars Andersen varð í fyrsta sæti ásamt PELbO tríóinu frá Noregi á Young nordic jazz comets sem fram fór í Osló.
Sjá nánar á heimasíðu www.ynjc.dk
The Ingimar Andersen Quartet

Reginfirra: Ingimar Andersen og Kristján Martinsson á Rósenbreg á RJF 2009
Reginfirra, kvartett Ingimars Andersen varð í fyrsta sæti ásamt PELbO tríóinu frá Noregi á Young nordic jazz comets sem fram fór í Osló.
Sjá nánar á heimasíðu www.ynjc.dk
The Ingimar Andersen Quartet
Skrifað af GJA
07.04.2009 22:33
Mánudagsblús á Café Rósenberg

Kristjana Stefánsdóttir.
Blús á Café Rósenberg mánudaginn 6. apríl 2009
Ólafur Stolzenvald með jazzblús sveitina Budget Jazzblues Band
Tómas R. Einarsson með tríó
og Kristjana Stefánsdóttir með hljómsveit.
Fleiri myndir eru hér:
Skrifað af GJA
25.02.2009 23:04
Stórsveit Reykjavíkur á Café Rosenberg

Stórsveit Reykjavíkur á Café Rosenberg 23. feb 2009
Stórsveit Reykjavíkur hélt ferna tónleika á Café Rosenberg nú í febrúar undir stjórn Sigurðar Flosasonar. Á tónleikununum flutti sveitin verk Thad Jones en hann "var almennt talinn í hópi mikilvægustu tónskálda stórsveitasögunnar og hafa tónsmíðar hans og útsetningar haft gríðarleg áhrif. Kraftmikil og áleitin tónlist hans hefur oft skapað magnaða stemmningu, ekki síst á klúbbum." (Jazzfréttir)
Fyrir mig og mín eyru tóks vel til. Einn af þessum konsertum sem lifir í minningunni.
Útvarp allra landsmanna tók tónleikana upp og munu þeir verða á páskadagskránni.
Myndirn frá tónleikunum eru hér:
Skrifað af GJA
06.01.2009 20:36
Borgardætur á Rósenberg

Borgardætur héldu upp á 15 ára afmælið með jólatónleikum á Café Rosenberg dagana 18. og 19. des. s.l.
Hér eru myndir frá 19. des
Undirleikarar Borgardætra á þessum tónleikum voru þeir Magnús Trygvason Eliassen á trommur , Birgir Bragason á bassa og Eyþór Gunnarsson á píanó.
Eyþór og Andrea áttu samsöng kvöldsins þegar þau fluttu lagið "Goodness gracious me" sem Peter Sellers og Sophia Loren sungu saman í myndinni The Millionairess.
Því miður hef ég ekki upptöku með Andreu og Eyþóri en læt Sellers og Loren að duga í staðinn.
28.12.2008 11:45
Stórsveit Reykjavíkur - Jólatónleikar 2008

Stórsveit Reykjavíkur var með jólatónleika sína í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 17. desember s.l.
Á fyrri hluta tónleikanna flutti sveitin svítu úr Hnotubrjótnum eftir Tjækovskí, útsettri af Duke Ellington.
Sigrún Hjálmtýsdóttir söng svo með sveitinni á síðari hluta tónleikanna. Sigrún söng m.a. lög sem sérstaklega voru útsett fyrir þessa tónleika af Kjartani Valdimarssyni og Stefáni S. Stefánssyni.
Það þarf varla að taka það fram að fullt var út úr dyrum í Ráðhúsinu þetta kvöldið og sveitinni ákaft fagnað í lok tónleikanna.

Sjórnandi stórsveitarinnar á þessum
tónleikum var Sigurður Flosason
Myndir má sjá hér
Skrifað af GJA
