Flokkur: Ýmsir tónleikar
02.12.2008 22:48
Andrea Gylfa og blúsmenn

Blúsmenn Andreu á Café Rosenberg
Andrea Gylfadóttir og Blúsmennirnir, þeir Jóhann Hjöleifsson, Guðmundur Pétursson, Einar Rúnarsson og Róbert Þórhallson héldu tónleika fyrir þéttsetnu Café Rosenberg mánudagskvöldið 1. des 2008. Fanta góður konsert og þarf ekki að hafa fleir orð um það.
Myndir má skoða hér

Í upphafi tónleikanna kynnti Halldór Bragason til leiks tvo blúsara frá Akranesi, þá Tómas Ævar Ólafsson og Þorleif Gauk Davíðsson, en þeir kalla sig Devil's Train
Efnilegir strákar af Skaganum.
Eins og sjá má voru ekki kjöraðsæður til myndatöku en smá eftirvinnsla bjargar nokkru. Á svona kvöldum er ekki við hæfi að nota flass heldur notast við þá lýsingu sem er til staðar.
Vandamál myndavélarinnar voru í fyrsta lagi bjart töfluljós bak við tónlistarmennina en það truflar ljósmælingu. Sviðsljósin í öllum sínum litum sýstu vel fætur spilaranna og sviðsgólfið en andlitin voru að mestu í myrkri.
Verð þó að gefa ljósunum prik í samanburði við lýsinguna á DÓMÓ. Segi ekki meir.

Skrifað af GJA
09.11.2008 22:00
SÖNGBÓK JAZZINS: IRVING BERLIN.
Frá Richard Rodgers tónleikunum kvartettsins á DOMO 7. nóv 2007
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR, GUNNAR HRAFNSSON, KJARTAN VALDEMARSSON OG
PÉTUR GRÉTARSSON fluttu tónlist Irvin Berlin laugardaginn 8. nóv. í Salnum í Kópavogi.
Sérstakur gestur var Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir.
Frábær skemmtun í Salnum og nú er um að gera að tryggja sér miða á næsta kafla úr Söngbók jazzins sem verður flett í Salnum laugardaginn 14. mars 2009. Þá verður flutt tónlist eftir George Gershwin.
jazz photography
Skrifað af GJA
10.07.2008 00:02
Bebop á Kaffi Cultura

Frá tónleikum Bebop félagsins á kaffi Cultura í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu mánudaginn 7. júlí
Þeir sem léku fyrir ánægða gesti voru Óskar Guðjónsson á sax, Kjartan Hákonarson á trompet, Kjartan Valdemarsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa og Magnús Trygvason Elíassen á trommur
Myndir hér
Tónleikar verða á kaffi Cultura fyrsta mánudag í hvers mánaðar.Taka daginn frá.
08.06.2008 23:54
Minningartónleikar um Árna Scheving
Fullt var út úr dyrum á tónleikunum og komust færri að en vildu.
Aðgangseyrir rann óskiptur í minningarsjóð Árna og var fyrst úthlutað úr sjóðnum á tónleikunum. Styrkinn hlaut Ari Bragi Kárason
28.04.2008 23:10
Kaupmannahöfn í apríl 2008
Nú í apríl átti ég leið um Kapmannahöfn og notaði tækifærið og skrapp á tvenna tónleika.
Föstudagskvöldið þann 18. apríl lá leiðin í Konunglega leikhúsið við Kongens Nytorv beint á móti Baugsbúðinn Magasin DuNord.
Á þessum tónleikum komu fram bassistarinir Moussa Diallo með hljómsveit og svo Kaupmannahafnarvinurinn Richard Bona, bassaleikarinn frá Kamerún.
Hvert sinn sem Bona hefur haldið tónleika í Kaupmannahöfn hefur hann heillað danskinn upp úr skónum með sinni frábæru leikni á bassann og einnig með vöggusöngvum frá Kamerún sem hann flytur á móðurmáli sínu.

Að sjálfsögðu er bannað að taka myndir á tónleikum í Konunglega en eftir uppklappið lét ég vaða. Þorði ekki að taka sénsinn fyrr því ég hef séð mönnum hent öfugum út á miðjum tónleikum.
Seinni tónleikarnir vor svo laugardagskvöldið þann 19. apríl í Copenhagen jazzhouse.
Þar lék tríó sem kynnt var sem Dahl - Vinding - Riel en það eru þeir Carsten Dahl, píanóleikari, Mads Vinding, bassaleikari og Alex Riel, trommuleikari.

Þessir þrír eru fremstir meðal jafningja í dönskum jazzheimi. Copenhagen jazzhouse bauð upp á jazz í heimsklassa. Salurinn var þétt setinn og áheyrendur á öllum aldri. Tríóinu var ákaft fagnað er það sté á svið og var auðheyrt að þessir menn eru þjóðareign. Ekki var kveðjuklappið minna því tríóið lék þrjú aukalög og eitt þeirra tileinkað Niels Henning Ørsted Petersen en hann lést þennan dag árið 2005.
Myndir hér
Copenhagen jazz festival 2008 verður dagana 4. til 13. júlí
Dagskráin er að koma

19.12.2007 00:00
Borgardætur
28.10.2007 21:17
Stórsveit Reykjavíkur og Lasse Lindgren

Stórsveit Reykjavíkur var í Ráðhúsinu í dag.
Stjórnandi var Lasse Lindgren, trompetleikari frá Svíþjóð
18.10.2007 21:06
Lluis Coloma trio - Central cafe, Madrid
Consert at Central cafe, Madrid, 14.10.2007
Lluis Coloma, piano - -
Manolo Germán, bass
Marc Ruiz, drums
Á Youtube 1
youtube 2
Myspace Lluis Coloma
Cafe Central, Madrid
08.08.2007 21:12
Hótel Flatey - Verslunarmannahelgin - Tómas R. og Spaðar
30.11.2006 19:18
Big Band Reykjavíkur og Bogomil Font

Stórsveit Reykjavíkur og Bogomil Ffont héldu útgáfu- og jólatónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur , miðvikudag 29. nóvember.
Stjórnandi sveitarinnar var Samúel J. Samúelsson. . Myndir hér ->
30.09.2006 00:00
Young Nordic Jazz Comets - Reykjavík 2006
30.04.2006 00:00
Útlendingahersveitin í sal FÍH
11.06.2005 18:14
Minningartónleikar um Niels-Henning Ørsted Pedersen

á Nordic hótelinu Suðurlandsbraut 2. (Gamla Hótel Esja)

Minningartónleikar um Niels Henning Ørsted Petersen voru á haldnir á Hótel Nordica þann 11. júní 2005
Hljómsveitina skipuðu: Finn Ziegler- fiðla, Árni Scheving - vibrafónn, Oliver Antunes - píanó, Gunnar Hrafnsson og Árni Egilsson á bassa , Einar Valur Scheving- trommur og Björn Thoroddsen - gítar.
Myndir hér:

27.05.2005 13:29
Cold front á Hótel Borg 2005

Cold front á Hótel Borg 27. maí 2005
Björn Thoroddsen á gítar Richard Gillis á trompet og Steve Kirby á bassa
Myndir frá Borginni er að finna hér:
Skrifað af GJA